Skráning fyrir gesti og sýnendur á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2027
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem verða haldin fimmtudaginn 28. janúar 2027 í Kórnum í Kópavog frá kl. 12–17.
Mannamót er árleg ferðakaupstefna þar sem ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni kynna þjónustu sína og vöruframboð fyrir fagaðilum í greininni. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu en á fyrri viðburðum hafa gestir verið rúmlega þúsund og sýnendur um 250 talsins. Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að styrkja tengsl við núverandi samstarfsaðila, stofna til nýrra viðskiptasambanda og kynnast fjölbreyttri ferðaþjónustu um allt land.
Á Mannamótum koma saman fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Sýnendur eru sérstaklega hvattir til að kynna það sem stendur ferðafólki til boða yfir vetrartímann og vekja þannig athygli á tækifærum til ferðalaga um Ísland allt árið.
Viðburðurinn er haldinn af Markaðsstofum landshlutanna í samstarfi við Isavia Innanlandsflugvelli, Keflavíkurflugvöll og Icelandair.
Skráning sýnenda
Samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að taka þátt sem sýnendur. Fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku en eru ekki þegar samstarfsaðilar geta haft samband við markaðsstofu síns landshluta.
Skráningu sýnenda lýkur 16. desember 2026.
Hér má finna skráningu og nánari upplýsingar um Mannamót.
Skráning gesta
Aðgangur er ókeypis og öllum frjálst að mæta. Gestir eru þó beðnir um að skrá sig svo hægt sé að áætla fjölda.
Mannamót henta meðal annars starfsfólki ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjendum, leiðsögumönnum og öðrum sem vilja kynnast framboði ferðaþjónustufyrirtækja um land allt.
Mannamót hluti af Ferðaþjónustuvikunni
Ferðaþjónustuvikan fer fram dagana 26.–28. janúar 2027. Markmið hennar er að vekja athygli á mikilvægi ferðaþjónustunnar og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.
Að vikunni standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.