Fara í efni

Mannamót 2018 - skráning hafin

27. nóvember 2017
Fréttir

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 18. janúar 2018 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Skráning á viðburðinn er hafin.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki.

Skráningu lýkur þann 12. janúar 2018.